Back to All Events

DÚÓ - óbó og klarínett

  • Akureyri Art Museum 8 Kaupvangsstræti Akureyri, Akureyrarbær, 600 Iceland (map)

DÚÓ - óbó og klarínett

Gillian Haworth, óbó Ármann Helgason, klarinett

~ Prógram ~

Haraldur Vignir Sveinbjörnsson (f. 1975) Sospiri fyrir óbó og klarínett- frumflutingur*

I. Rubato e grave IV. Staccato ma dolce

II. Espressivo ondeggiante V. Piu rubato e espressivo

III. Spiritoso

Fjölnir Stefánsson (1930-2011) Dúó

Magnús Blöndal Jóhannsson (1925-2005) Dúó Sonata

I. Allegro

II. Allegro grazioso, andante con espressivo, allegro

III. Alla breve

Wallingford Reigger (1885-1961) Dúó op. 35

I. Moderato

II. Andante affetuoso

III. Tema og fjögur tilbrigði, coda.

*world premiere

Um verkið:

Sospiri (Andvörp) er dúó fyrir óbó og klarinett í fimm stuttum þáttum. Tvær raddir fléttast saman í fíngerðu samtali þar sem þær ýmist renna saman í sameiginlegan hljóm eða takast á í lifandi tónlistarlegum orðaskiptum. Flæðið er óþvingað og lífrænt, líkt og andardráttur sem kemur af sjálfu sér.

Um flytjendur:

Gillian Haworth er ensk að uppruna og stundaði nám við Dartington College of Arts. Að loknu háskólanámi í tónlist flutti hún til Reyðarfjarðar og í 36 ár vann hún við blásarakennslu, kórstjórn og sem skólastjóri tónlistarskólans. Gillian hefur verið búsett í Reykjavík s.l. 3 ár og stundar blásarakennslu, en einnig er hún stjórnandi Skátakórsins. Óbóið er aðalhljóðfæri Gillian og hefur hún komið fram á ýmsum kammertónleikum m.a. með blásarakvintett NorðAustan5-6,  á Myrkum Músikdögum með tónlistarhópnum Stelk, með Tríó con Bríó í tónleikaröðinni Stuðlar á Akureyri og í Reykjavík og á dúettónleikum á 12 tóna korteríi á Akureyri.  Gillian hefur komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hún er óbóleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hjá Sinfóníuhljómsveit Suðurlands og er mjög stolt af því að vera ein af stofnendum Sinfóníuhljómsveitar Austurlands.

Ármann Helgason klarínettuleikari hefur átt fjölbreyttan feril sem einleikari, kammermúsíkant og hljómsveitarspilari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Íslensku óperunni, kammerhópnum Camerarctica og ýmsum öðrum hópum, m.a. Caput, Hnúkaþey og færeyska kammerhópnum Aldubáran. Ármann var valinn bæjarlistamaður Garðabæjar árið 1997, hlaut TónVakaverðlaun Ríkisútvarpsins árið 1995 og hefur hlotið starfslaun úr Listasjóði til þess að vinna að ýmsum verkefnum. Hann stundaði nám í klarinettuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík, í London og París og hefur hann oftsinnis hlotið starfslaun listamanna til þess að sinna ýmsum tónlistarverkefnum. Ármann sinnir einnig uppeldislegum skyldum og er deildarstjóri blásaradeildar við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem hann stýrir einnig Sinfóníuhljómsveit skólans.

WindWorks í Norðri er styrkt af:

Uppbyggingarsjóði SSNE, Akureyrabæ, Norðurþingi, Samfélagsstyrks Norðurorku, Tónskáldasjóði Rúv og Stef´s og Listamannalaunum.

Previous
Previous
12 August

DÚÓ - Elektra

Next
Next
8 August

TRÍÓ - Chalumeau