Back to All Events

DÚÓ - flauta og klarínett

  • Dalvíkurkirkja Böggvisstaðir Dalvík, Dalvíkurbyggð, 620 Iceland (map)

DÚÓ - flauta og klarínett

Hrefna Vala Kristjánsdóttir, flauta Íris Orradóttir, klarínett

.

‍‍ ~ Prógram ~

Gordon Lewis Nostalgia d’España

  • Viva granada, sevillanas

  • Por la noche, Habanera

  • Los campesinos, Jota

Bára Grímsdóttir Andvari II

  • vatn

André Jolivet Sonatine

  • Andantino

  • Quasi cadenza

  • Intermezzo, Vivace

Edward Elgar Chanson de matin arr. Lewis Andrews


Um flytjendur:

Hrefna Vala Kristjánsdóttir hóf þverflautunám 9 ára gömul hjá Pamelu De Sensi í tónlistarskóla kópavogs og útskrifaðist þaðan vorið 2024. Hrefna hefur frá upphafi verið mjög virk í samspili en hún hefur spilað sem fyrsta flauta með Ungsveitinni, Ungfóníunni, sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna og flautukór Pamelu De sensi. Hún hefur tekið þátt í nokkrum alþjóðlegum tónlistarkeppnum og vann hún 1. verðlaun í International music competition í Bari á Ítalíu, 1. verðlaun í Stockholm international music competition, 1. verðlaun í international flute competition ,,Angelo Faja” á Ítalíu og komst í úrslit í Moyse international flute competition í Sofiu í Búlgaríu. Hrefna hefur tekið þátt í mörgum flautunámskeiðum bæði hér og erlendis, m.a. hjá Davide Formisano, Paolo Taballione, Ian Clarke, Wissam Boustany og Matthias Ziegler.

Íris Orradóttir hóf klarínettunám 8 ára gömul hjá Jacub Kolosowski og lauk framhaldsprófi vorið 2022 frá Tónlistarskólanum á Akureyri undir handleiðslu Michael Dean Weaver. Íris lauk bakkalárgráðu í klarínettuleik vorið 2025 frá Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Einars Jóhannessonar. Íris hefur í gegnum tíðina tekið þátt í verkefnum á vegum Lúðrasveitar Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Ungfóníunnar og Ungsveitar SÍ svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur hún sótt námskeið og masterklassa erlendis og hérlendis m.a. hjá Annelien Van Wauwe, Fabian Dirr og Christian Stene.

WindWorks í Norðri er styrkt af:

Uppbyggingarsjóði SSNE, Akureyrabæ, Norðurþingi, Samfélagsstyrks Norðurorku, Tónskáldasjóði Rúv og Stef´s og Listamannalaunum.

Previous
Previous
10 August

KVARTETT - tvær flautur, klarínett og fagott

Next
Next
11 August

DÚÓ - trompet og básúna