SÓLÓ - básúna
Steinn Völundur Halldórsson, básúna
~ Prógram ~
Jacob TV (1951.) - I was like wow (2006)
Luciano Berio (1925-2003) - Sequenza V (1966)
Jan Sandström (1954) - A Short Ride on a Motorbike (1989)
Um efnisskrána:
Básúnan sannaði sig sem fylgdarlaust einleikshljóðfæri á síðari hluta 20.aldar þegar fræg tónskáld á við Berio og Xenakis sömdu verk fyrir hljóðfærið. Það var skýrt að það þyrfti ekki að flytja með píanóleikara lengur. Tónskáld lok 20.aldar og 21.aldar tóku þetta þó skrefinu lengra og varð vinsælt að semja fyrir básúnu og undirbúna upptöku. Í þessari efnisskrá sýni ég hvað þessi blanda lifandi tónlistar og upptöku getur skapað fjölbreytta og nýja möguleika.
Um flytjanda:
Steinn Völundur Halldórsson er básúnuleikari frá Íslandi og hefur nýverið lokið námi við tónlistarháskólann í Basel undir handleiðslu Mike Svoboda. Steinn hefur víðtæka reynslu af tónlistarflutningi og hefur leikið með atvinnuhljómsveitum í Hollandi, Íslandi og Sviss. Steinn er fjölhæfur tónlistarmaður með mikinn áhuga á upprunaflutningi og er einnig fær sackbutleikari. Steinn leikur reglulega sem aukamaður með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og sýnir þannig ástundun sína við bæði nútíma- og sögulega efnisskrá fyrir málmblásturshljóðfæri
