DÚÓ - flauta og saxófón
Pamela De Sensi, flauta Guido Bäumer, saxófón
Icelandic Nuances
~ Prógram ~
Elín Gunnlaugsdóttir Mjúkveður fyrir altflautu og altsaxófón frumflutingur*
Kolbeinn Bjarnason Due voci fyrir altflautu og altsaxófón frumflutingur*
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir Air/Bird fyrir piccolo/fluta og alt saxófón frumflutingur*
*world premiere
Um flytjendur:
Pamela De Sensi tók einleikarapróf á flautu frá Conservatorio Perosi á Ítalíu 1998, lauk "Perfection Flutistic" frá"Accademia di Musica Fiesole" í Florens árið 2000 og útskrifaðist frá "Conservatorio Superiore di S. Cecilia" í Róm árið 2002 með meistaragráðu með hæstu einkunn í kammertónlist. Hún hefur komið fram á tónleikum víðs vegar bæði sem einleikari og í kammertónlist og má þar nefna Frakklandi, Spáni, Englandi,Kasakstan, Mexíkó, Íslandi, Færeyjum, Finnlandi, Kína, Japan, í Bandaríkjunum og víðsvegar á Ítalíu, ásamt því að koma reglulega fram hér á Íslandi á tónlistarhátíðunum Myrkum músíkdögum, Tibra í Salnum, Norrænum músíkdögum, Sumartónleikum í Skálholtskirkju, Menningarnótt, Tectonics, 15:15 tónleikaröðinni og Listahátið. Pamela hefur spilað m.a. á plötu Bjarkar UTOPIA, VIDDIR með tónlist eftir Báru Gísladóttur, Album með tónlist eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og er hluti kynningarteymis flautusmiðsins Eva Kingma frá 2022, en hún er að spila á nýrri sérsmíðaðri Kingmakontrabassaflauta.
Guido Bäumer er frá Þýskalandi og fluttist til Íslands árið 2000. Hann stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi og lauk kennaraprófum á saxófón. Hann stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Basel þar sem hann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State University í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann lauk Artist Certificate. Í Sviss kenndi Guido m.a. við Tónlistarskólann í Luzern og lék á barítón-saxófón í saxófónkvartettinum Mit-links. Guido hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Austurlands. Einnig hefur hann leikið einleik í saxófónkonsert eftir J. Ibert og frumflutt verk eftir íslensk tónskáld og er félagi í Íslenska saxófónkvartettinum. Guido kennir við Tónlistarskólann í Kópavogi.
